....
18.09.2006 20:04:03 / sandra;*

!

HÆTT


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 17:47:37 / sandra;*

Magnavaka í kvöld

Jebs! Ég er alltaf svo dugleg að setja inn myndir, eins og þið flest vitið.. er það ekki ;)?
Allavega nýjar myndir

MMS myndir                           
Photoshop #2                    

                                                     
Annars veit ég voða lítið hvað ég á að blogga um? Svo leiðinlegt þetta
hefðbundna blogg, segja frá deginum og svona :$ Æj já. Samt síðustu daga
hef ég verið að gera voða lítið. Bara skólinn, hanga e-ð heima & fótboltaæfingar.
Fótboltaæfingarnar hafa verið mjög fínar eftir að við fengum nýjann þjálfara, hann
Elmar Braga...... sem stendur sig með prýði ;)


Muse - Time is running out <3

Jáá, mig langar ofsalega mikið í peninga. Kaupa mér föt, föt, föt & endalaust af fötum. Langar einnig til útlanda og verða brún.............brún en það er víst ekki á dagskrá. En þá verður maður að fara í ljós... en neinei það er ek hægt hér á Seyðisfirði... því ég er fkn of ung! Afhverju getur þetta ekki verið eins og á egs eða í rvk eða e-ð! ÉG VIL BRÚNKU! Svo langar mig  til rvk, en já þar sem hæfileikinn að skíta peningum er ekki til, þá kemst ég ekki :whut:
Erfitt líf
Samt fer ég til rvk í ár aftur. Sem verður met, því ég var vön að fara á 4. ára fresti. Jááá þar sem það er einhver LEGO keppni í rvk sem skólinn minn tekur þátt í, ákvað ég að taka þátt & fæ þá að fara til rvk ;) & er það í Nóvember! Svo auðvitað verður bróðir minn að taka þátt í HERRA ÍSLAND eins og var boðið honum.... og þá er keppnin 23. nóvember í rvk einmitt & já þá verða það orðnar 4. ferðir á einu ári :) æðiiiiiiiiiislegt

Svo er það bara magnavaka í kvöld hjá skólanum. Frá 22-02:00 & mun það vonandi vera e-ð skemmtilegt.
Svo er fjarðarballið nuna 13. okt & það mun vera fjöööööööööör
Svo veit ég ek meir til að blogga... bæbless


58.jpg

-Ólafsdóttir


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.09.2006 14:40:32 / sandra;*

Já nú veit ég hvernig ég mun líta út með spangir.............

Ekki flott?
Hahaha......

gbaramespangir.jpg
Gert í paint

Já ég get nú sagt að mér kvíði fyrir!!
En þess virði..........


» 11 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 21:25:58 / sandra;*

Get ekkert lært þarna................................

...................sagt okkur að taka bækurnar... og já það stendur nefnilega svo MIKIÐ Í BÓKINNI, já neiii! allt úr verkefninu sem við gerðum í síðasta tíma.. jáájá - hvernig á ég að geta gert þetta samfélagsfræði sjálfsprfó!

Tussu ..................

HJÁLP


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.09.2006 19:10:15 / sandra;*

Nennikki..

Nenni gjörsamlega aldrei að blogga...
...en svona er þetta!

Dagarnir eru búnir að veða voðalega fljótir að líða alltaf. Þessi vika sérstaklega fljót að líða & helgin mun vera mun fljótari... sem er ekki gott.
Annars hef ég mikið undanfarið verið bara heima í tölvunni, nenni aldrei út? Nema á fótboltaæfingar.... hvað er í gangi.
Mig langar svo í ljós núna!! Þarf að vera BRÚN ohh

Í dag var svo síðasta æfingin með Sveinbirni & mun Elmar bragi þjálfa okkur næstu æfingar... sem ég er nú bara alveg ánægð með.
Ég er einnig búin að vera að dunda mér í einhverju myndaforriti sem fylgdi einnig með símanum & ætla ég að skella nokkrum myndum hér í bloggi & svo mun ég búa til dálk með þessum myndum ;) töööööff

10.jpg
Unnur með hænu dans, uppáhalds breytta myndin mín

14.jpg
Aníta&Unnur á afmælisdaginn minn

23.jpg
Andrea&Klara sætu systurnar

21.jpg
Ég&Andrea ;*

28.jpg
Vigdís gella

-Ólafsdóttir


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.09.2006 20:18:18 / sandra;*

Nýr banner!

& já.. ég gerði hann í paint!

Svo aðrar fréttir, þá er ég komin með nýjann síma.. og þar sem fylgdi einhver diskur með þá get ég hannað símhringingar í tölvunni, hringt í tölvunni, sent sms í tölvunni(þannig það komi frá mér, ekki á siminn.is eða slíkt) & einnig gert símaskránna mína í tölvunni... sem er mun þæginlegra því þá get ég vélritað & þarf ekki að pikka á litla takka og allt fer í kúk. Jáá mjög þæginlegt það.

Annars var það ekkert fleira, samt....
Ester að flytja hngað á laugardaginn!! Verður svo gott að hitta hana! :**

svo líka já, nýju myndirnar duttu út svo ég er bara búin að setja skóladaginn inn & mun sennilega ekkert setja hinar inn..

-Ólafsdóttir


» 8 hafa sagt sína skoðun

03.09.2006 19:00:09 / sandra;*

já ég er svolítið léleg...

Ekki nógu dugleg við að blogg núna síðusta daga. Ég veit, sorry! En það sem ég hef verið að brasa.....

Föstudagurinn; Já busaballið var þá. Alveg ágætt þetta kvöld, samt svo slappt en já gott að hitta Jafet&vitktor&kristíni og sjá fínu hendurnar hans jafets :) Annars fór ég bara e-ð um tvö leytið heim með henni unni og gisti þar.

Laugardagurinn; Guðný ástin átti afmæli þenann dag & hringdum við unnur strax í hana þegar við vöknuðum. Fórum svo og fengum okkur e-ð að éta. Síða héldum við heim til anitu með nammi og dótarí. Svo var farið útí sjoppu & ég fór svo bara heim að græja mig (maður búinn að vera ómálaðaru eða svo & úldinn allann daginn) Svo um átt leytið fór ég til anítu & við guðný, vigdís, unnur, aníta & tinna fengum okkur að borða saman, faitos, og horfðum á 'When Stranger call' sem var mjög fín mynd og við vorum að skíta á okkur alla myndina. Svo var farið heim frekar snemma, e-ð um eitt leytið.

Sunnudagurinn; Rólegheit bara hérna ein heima. Horfði á einhverja DVD mynd áðan... veit ekki hvað hun heitir en já. Svo bara buin að vera í tölvunni og setja inn nýjar myndir.
Kvöldið verður bara TV-gláp og snemma að sofa.... ætla að geta vaknað í skólann á morgun.

2897210e.jpg
afmælisdagur Guðnýjar

Við anika í skólanum og.....                              ...íþróttir úti
214dcb91.jpgbf3d50dd.jpg
Ég að fermast                                     Jólin 2004... við anika í 70. mín spilinu ;')
ae2694ad.jpg
Ég&Amma gamla :);*
ab252f07.jpg94bdeaf5.jpg
Tinna&Ég                                  Andrea

Já ég ætla að kvarta smá. Mér finnst alveg að það mætti kommenta oftar eða kvitta í gestabókina hérna, þar sem það kíkja alveg oft yfir 60. manns hingað en kvitta aldrei neitt... finnst eins og ég sé að halda þessa síðu fyrri sjálfann mig stundum :$

En já annars ætla ég að fara að kaupa mér nýjann síma í vikunni, skoða íbúðina hjá sonju&símoni og þeim & kíkja á vistina til Jafets & Viktors...... jáá kominn tími til.
En við heyrumst síðar... endilega komennta e-ð ;)

NÝTT - Afmælisdagur Guðnýjar
Mun koma myndir úr skólanum en kerfið alveg í fokkinu svo það kemur seinna.
Vil minna á spjallið hér til hægri... (:

-Ólafsdóttir


» 13 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 19:34:02 / sandra;*

Smá svona rock star bara...

[[In the air tonight; Ryan Star]]
[[Mood; Druuuullu þreytt, en frekar mjög hress]]


Ég er svo ánægð!! Ég fann lagjið mitt... ég fann það!! In the air tonight - Ryan Star sem er úr rock star; supernova! Gawd, fkn geðveikt lag... ógeðlega rólegt í byrjun og svo bara brjálaðar trommur&læti, jiminn

Smá svona rock star já...
Ryan Star; Klárlega með þetta. Fílaði hann ekki í byrjun en dýrka hann núna, held samt ekki með honum
Toby; Kroppur!! Held með honum...
Dilana; Töffari... samt svo komið með nóg af henni
Magni; Heldur maður ekki með honum? Jú auðvitað
Lukas; tjaa... slappur
Storm; Mér finnst hún mjög góð... en e-ð að klikka hjá henni


Magni&Toby                                                Ryan, sem gerði þetta frábæra lag fyrir mig

Hhaha já! Skemmtilegt blogg þetta... vildi bara deila þessu með ykkur, þar sem ég hef voðalega mikinn á þessu e-ð ;) haha.. já spees

- - - - - - - - - - - -

Jájájá, dagurinn í dag? Típíst leiðinlegt blogg að blogga um daginn... hehe lesið bara ef þið nennið því ;)
Fór í skólann, þar sá maður nýju stelpuna sem var að flytja hingað..ehe :lol:, svo fór ég bara heim í hádeginu & aftur í skólann. Við andrea&eva fórum svo heim til mín að spjall e-ð og í tölvuna (þar sem ég fann drauma lagjið mitt ♥) svo var fótboltaæfing & vorum við fjórar á gerfigrasvellinum. Jájá, fín æfing þetta :)
Í kvöld? jáá bara hafa það nice, horfa á rock star & læra ekki baun (Y) því sandra litla búin að vera svo ótrúlega dugleg að læra ;J maður er gjörsamlega að sökkva í lærdómi.......................................... en svona er þetta ;)

• Jæjja á bekkurinn ekkert að fara að safna neitt fyrir DK ferðina... soldið síðan það var?
• Ég ætti kanski að taka til í kvöld? aldrei að vita nema maður verður til í það..
• Stærðfræði orðið eitt uppáhaldsfagið mitt! Kraftaverkin gerast enn :o
• Er ekki frá því að Sigurður Snæbjörn sé kominn í mútur.. haha fyndið eða?
• Fáránlega skrýtið að vera ekki með 10. bekk enþá í bekk 8|
• Hahah tvisvar búið að spurja mig að því hvort við viktor séum kærustupar ? haha hvað er málið með það? :')

95102f67.jpg
Við viktor kallinn...

f70c4c58.jpg
hehe, magnað

da31eebe.jpg
Jóna&Andrea á huginn - afturelding einhvertíman í
byrjun sumarsins... svo egill voða hress fyrir aftan (:

9a1e1038.jpg
Vigdís & Tinna e-ð í 50 fíling :D

ecea2fad.jpg
Jafet & APRÍL ÁSTIN;*

-Ólafsdóttir, kommenta?


» 13 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 12:19:44 / sandra;*

Sorry bloggleisið!

Já fyrirgefiði þetta bloggleisi mitt...
bæti þetta upp fyrir ykkur núna & blogga um helgina.


Föstudagurinn; Fór í skólann um morguninn & eftir mat var enginn skóli svo Andrea kom með mér heim í hádeginu. Þar fékk maður þær ótrúlega sorglegu fréttir að Muff hafi dáið :cry:♥ Þykir það svo leiðinlegt & ég mun aldrei gleyma henni! aldrei............ þótti svo vænt um hana :*
Svo fórum við Andrea útí banka & svo til Jónu. Þar vorum við í klukkutíma að letingjast e-ð. Fórum svo útí bókabúð & heim til mín að baka kornflexkökur :) jeiiiij... & þær voru þær bestu sem við höfum einhvertímann fengið!

Laugardagurinn; svo skemmtilegt þenann dag. Hann var voða letilegur reyndar um daginn, fór útí soppu bara e-ð & svo til jafets með honum, kristíni & viggu. Síðan fór ég heim og á leikinn Huginn - KS/Leiftur sem endaði 2-3 ! DJÖFULSINS KJAFTÆÐI!! ohh var fkn ógeðslega pirruð eftir hann... Huginns menn áttu þenann leik svo mikið meira skilið en hinir sem gátu ekki staðið í fkn lappirnar og grenjuðu eins & pelabörn! ohh þoli ekki svona. Huginns menn voru betri & áttu boltann allann fyrri hálfleikinn.... maður leiksins var klárlega Martin Grønbæk sem átti þrusu skot í slánna (óheppnin að þetta var ekki mark) en svo kom Donni og bjargaði því með marki :) Svo var fyrra markið skutluskalli hjá honum Baldri, þrælflott hjá þessum strákum... synd að þeir unnu þetta ekki! En já nóg um þenann leik... eftir leikinn fór ég út í sjoppu að borða & þar voru Jafet, Unnur, Vigdís, Tinna, Viktor & Júlía. Svo fóru þau og Vigdís&Unnur að skúra, ég var bara hjá þeim & síðan fórum við til donna & vorum þar til hva? 04:00.... jáá auðvitað enda öll kvöld á smá drama hér á seyðisfirði ekki satt? hehe jú ;)

Sunnudagurinn; Leti, leti, leti! Já vaknað með þeim Vigdísi&Unni, farið útí sjoppu, svo til Anítu í sims (endurtökum þetta aftur einhvertímann.. haha! Vil gera dramað sem ég skiðulagði:klikk:) svo bara heim í mat um sjöleytið & farið að sofa frekar snemma, e-ð um ellefu leytið.. jáá ég var þreytt!


þeir eru alltaf bestir..... sama hvað! Áfram Huginn

Svona.. þá er þetta komið ;) Vil minna á að ég er
búin að gera nýtt í 'um mig' endilega tjékkið það.


-Ólafsdóttir


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 12:16:12 / sandra;*

Hahaha

N ý j a r  m y n d i r . . .
e r u  í  a ð a l v a l m y nd!!!!!!

Ælta segja frá tvennu fyndnu sem gerðist í síðustu viku! Það fyrsta....

Ég, Vigdís, Jafet & Bjössi vorum að labba
frá sjoppunni. Kemur ekki Vífill litli & ég
er e-ð að skoppa bolta & það fyrst sem
kemur útur mér þegar hann hjóla
frammhjá er 'Hæ feiti :)' hahahaha !
Hann alveg ':(?' & jafet í kasti og ég
held bara e-ð fyrir muninn.. og æji :')

svoo getrðist það ljóskulega atvik að við Viktor, Jafet, Alla & Mamma fórum uppá egs að éta pítsur nuna um daginn.. & já það var komið með pítsuna til mín & hun var skorin í X & mér fannst hún soldið skrýtin & skyldi ekkert í því hvernig hun var skorin & sagði 'bíddu... afhverju er þetta svona? Á hún ekki að vera svona (læt puttana skera svona +) Þá segjir Jafet 'Hahah Sandra mín pítsan er skorin í plús.. snýr bara eins og X' æji já.. :')

Mér finnnst þetta fyndið....en ekki fyndið að það sé skóli á morgun

-Ólafsdóttir.. Guðný kemur í dag! ;*


» 10 hafa sagt sína skoðun

21.08.2006 01:52:00 / sandra;*

Góðar&slæmar fréttir.....

-Góðar-
Unnur&Aníta koma á morgun!hlakka svo til að hitta ykkur ;*

Skólinn byrjar ekki á morgun heldur á fimmtudaginn...

Loksins komin með hárgreiðslusléttujárnið mitt :)

Guðný ástin að koma að búa hér með okkur aftur á sey!! aaww.. ;**

Ég kenndi Pam litlu að hoppa uppí stólinn til mín, duuuugleg!

-Slæmar-
Bjarki týndi hringnum sínum....byttan! :(

Þótt skólinn sé ekki á morgun þá bætir það ekki úr því að maður er að fara að vera með ansi "skemmtilegum" bekk þetta árið!

Peningurinn minn að vera búinn, neii!

Sumt fer í mínar fínustu.............................................

Apríl&Sindri flutt frá okkur á sey.. :( ;*

-Ólafsdóttir


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.08.2006 18:54:17 / sandra;*

Dúúúúndrandi gott veður

Sól&blíða í allann dag! aaaah æðislegt að vera úti & worka tanið, þótt ég hafi ekki getað gert mikið af því en jújú svona smá ;)
Byrjaði daginn á því að vakna við væl&gellt í Pamelu inná klósetti (einhverstaðar þarf hun að vera þegar enginn er heima) klukkan fkn níu um morguninn! Fór á fætur & með hana framm og horfði bara á TV-ið, svo fór ég á þetta Bæjarvinnu slútt um hádegið sem byrjaði reyndar níu um morguninn... en var meidd&ætlaði aldrei að mæta en svo breyttist það. Rauða liðið vann, græna svo & blá sukkaði ;) neinei segji svona, viktor var nú samtfreeekar tapsár ekki satt?
Svo var farið heim til mín & e-ð að sleikja sólin með þeim Viktori, Jafeti & Birni(björn?)Fannar á trampólíninu mínu. Já svo fór ég bara á fótboltaæfingu klukkan fjögur að horfa á & þaaar var nú meira stuðið! Eftir æfinguna fórum við Eva&Jóna í smá vatnstríð :D ég reyndar ekki með útaf því ég var ekki sveitt og sjúskuð en ég sprautaði á þær & þær á tómas þjálfara, sem btw var með síðustu æfinguna í dag :( Jóna endaði þetta nú samt með því að skvetta vatni á annann helminginn á mér svo bolurinn minn var blautur öðrum meginn (Y) takk jóna mín....
T.U.S.S.A

Hverfahátíðin á morgun, jáá verður stuð hér á seyðisfirði.. meira en í rvk þar sem hér verður sól&blíða en rigning í rvk :klikk: muhhahha!
Eru samt voða margir að fara á menningarnótt, en við fáu sem verðum hér skemmtum okkur alveg :)

Veit eginlega ekki hvað ég á að blogga um meira ? Á ég ekki bara að segja þetta gott í bili? Júúúú held það.
GUÐNÝ ÁSTIN MÍN KOMIN TIL ÍSLANDS!!!!! ÓMÆGOD... HLAKKA SVO TIL AÐ HITTA HANA!! <3

-Ólafsdóttir


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 12:02:44 / sandra;*

Keppi ekki oftar í sumar.....

Jááá greit! Meiddist á æfingu í gær & átti að keppa í dag en þar sem ég er vöknuð og veit hvernig mér líður að þá er það komið á hreint að ég keppi ekki!ohhhh.... vil keppa því þetta er síðasti leikurinn okkar & ég keppi ekkert meira í sumar fyrst þetta er svona! æji já svona getur lífið verið erfitt... en annars gangi ykkur hinum vel, kem auðvitað og stið ykkur stelpur.

Síðasti leikur hinsvegar á móti Þrótt! Hahahaha.... hef ekki spilað jafn barnalegann leik & aldrei hlegi jafn mikið inná vellinum. Kom einnig mjög skemmtilegt orð útúr einni þróttara stelpunni við Jónu sem var 'Nauðgarinn þinn' hahah whaat? Nauðgari :')? Æji!
Byrjunarliðið var svona

                  Kolla

Aníta                     Sandra(ég)

Unnur A                Unnur S


Anna                       Jóna

Leikurinn endaði 2-2 & þeir sem skoruðu voru Jóna & ÉG!:haha: ótrúlegt en satt... & það fyndna við þetta var að ég skoraði úr aukaspyrnu sem ég átti ekki að taka :') haha finnst ég geðveikt frek en var einhver miskilingur þarna á ferð & jóna átti víst að taka þetta.. haha :) sry ástin ;*

E v e n heaven is hell without you

Heyrðu jáá... Stefán Jóhann fluttur til englands. Ekki gaman :( vonandi skemmtir hann sér bara mjög vel þarna úti & hlakka til að fá hann í DK ferðina okkar á næsta ári... það mun vera allt öðruvísi án hans í bekknum, þar sem hannn fær mann oft & mörgum sinnum til að hlægja með þessum bjána skap sínum ;)
& til að gera þetta blogg skemmtilegra ætla ég að skella nokkrum gömlum myndum hérna inn!



Við jóna kengilmagnaðar? nii



Guðný ástin & ég *spikfeitahelvíti*!



Þaaaaarna! Goðmótið í hittifyrra.
Lengst til vinstri efri röð <- Birkir, Eva, aníta, Heiðdís, Ég,
Unnur Arnar.
Lengst til vinstri neðri röð <- Þórunn, kolla, Jóna, Unnur &
Vigdís! hhaha magnað



Æðisleg mynd af helga hér á ferð (:

-Ólafsdóttir

» 4 hafa sagt sína skoðun

16.08.2006 13:36:52 / sandra;*

Reykjavík

Miðvikudagurinn; Ég vaknaði um morguninn, græjaði mig, fór útá herðubreiðarplan & fór með rútunni til egs í flug. Sat ein í flugi sem betur fer! En svo komu Andrea & Kristrún mamma hennar að ná í okkur & við skelltum okkur bara beint í kringluna. Keypti mér e-ð & andrea líka svo þurftum við að labba heim til hennar sem tók okkur 30-40 mínútúr -.-' Eeen keyptum okkur brauðstangir í leiðinni svo það bætti ástandið. Heyrðu... svo fórum við í barna afmæli hjá frændfólki Andreu (bara við Andrea & klara samt) & neinei, gerði ég ekki þann frábæra hlut að byrja á að hella vatni á afmæliskökuna :') Jesús.. ég skammaðist mín svo mikið & bara vá! hahaha.
Eftir afmælisveisluna fórum við bara heim & þá var smá kaffi því Nóni (stjúpfaðir andreu) átti afmæli deginum áður. Það var voða gaman.


Fimmtudagurinn; Við vöknuðum & fórum í World Class, því andre & mamma hennar voru að fara í klippingu & litun & svona stuff. Sá Jóa fel einnig (Y) Svo vorum við þarna í 4-5 klt :| Fórum við Andrea&Klara svo í smáralindina.. keypti mér slatta þar & fórum svo í kringluna... og vorum þar til 21:00! Þegar við komum heim vorum við bara e-ð í tölvunni & e-ð :)


Föstudagurinn; Fórum í kringluna e-ð um hálf tvö. Keyptum heeeeeelling! Var svo mikið á útsölu að það var bara rugl. Svo hitti ég Andreu Sól <3 & Óskar kærastan hennar ;) ...svo gaman að sjá þig þótt það hafi verið stutt ;*
Síðan vorum við e-ð meira og bara að versla. Svo þurftum við að fara heim & græja okkur fyrir sumarbústaðinn sem við vorum að fara í með ömmu&afa andreu. Þau komu að ná í okkur & fórum við á Subway í mosfellsbæ. Svo drifum við okkur í sumarbústaðinn sem er á þingvöllumm! Við Andrea fórum strax í heitapottinn & vorum slatta lengi þar. Fengum okkur e-ð í gogginn síðan & svo var bara djammað með ömmu hennar.... haha segji svona. Farið var seint í háttinn


Laugardagurinn; Já við vöknuðum & fengum okkur e-ð í gogginn, fórum svo að veiða með afa þeirra & veiddum 23 fiska 8) Svo fórum við heim & við Andrea í pottinn. Síðan var kvöldmatur þar sem við fengum e-ð gott kjöt :) Síðan fórum við til nágrannans til að fá lánaðar DVD myndir... stoppuðum í klt á kjaftaturn & mér leiddist svoooooooooo..hehe :lol: Svo fórum við heim & leiðinlegri myndin virkaði bara svo við höfðum hana í gangi een ég var meira og minna bara í símanum þetta kvöld, þar sem fólk á seyðisfirði var bara blindfullt og á fylleríi!

Sunnudagurinn; Vöknuðum & fengum morgunmat & fórum svo allar þrjár í pottinn (ég, andrea&klara) Síðan fórum við að veiða smá í vatninu fyrir neðan & veiddum 5. fiska, hheehe.. síðan fórum við aftur í bústaðinn & það var komin ógesðlega 18° hiti!! & alveg logn....jiiiiiiih maður var gjörsamlega að steikjast!
Þegar svona veður gefst þá auðvitað fer maður að worka tanið! Síðan fór sólin & það kólnaði & það sem ég gerði var að drepast úr stressi að ég myndi ekki ná fluginu eða þá fá ekki fötin mín með mér í flug því Kristrún var 2. klt of sein.. hehe! Ég gat engan veginn róað mig & var smá pirruð (kemur á óvart) en þetta blessaðist allt saman. Svo kom ég í firðinn fagra & við aníta fórum útí sjoppu að borða e-ð, jafet kom svo & við fóru msvo til unnar þar sem fullt af fólki var :)


-Ólafsdóttir

» 10 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 01:37:38 / sandra;*

Komin heim.. rvk næst

Komin heim úr fótboltaskólanum! Var fkn geðveikt gaman... koma myndir eftir viku!
Fer til rvk á morgun um morguninn...
koma einnig myndir þaðan!
Mun gista hjá andreu...
& bless nenni ekki að blogga

-Ólafsdóttir


» 16 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Klukkan
Leitarbox